Agnarögnin

Thursday, May 19, 2005

Eitt og hálft ár.

Hæ, allir.
Nú er ég orðin 18 mánaða gömul. Það gerir mig að stórri stelpu, enda er ég fyrir löngu síðan búin að læra að lyfta upp höndunum til að sýna öllum hvað ég er stór.
Ég veit að ég heiti Iðunn Nótt, en ef þið spyrjið mig mun ég segja baby. Þar sem allir í kringum mig virðast hafa einhverja titla eins og dadda, mamma, amma, afi, frænka og frændi, skil ég ekki hvers vegna ég er ekki bara kölluð baby, það er jú, það sem ég er.
Ég hef eins og margir vita gríðarlegan áhuga á dýrahljóðum og get núna hermt eftir kúm, hundum og svínum. Auk þess sem ég get veitt ,,flugur" með tungunni eins og froskur. Kettir heita aftur á móti allir Bella, eins og kisan sem ég, mamma og dadda eigum, hún mjálmar ekki og þar af leiðandi segir hún bara Bella. Mamma er stundum að reyna að kenna mér að segja mjá, en það finnst mér bara vera fyndið.

Skrifa ykkur seinna.
Iðunn Nótt

Friday, May 13, 2005

Mamma segir að ég sé búinn að vera mikið eðalkrútt en svolítið lítil í mér enda lasinn og búin að þurfa mikið knos. Knosið verður að vera rétt samt, ekki eins og ég sé smábarn, heldur vil ég sitja virðuleg í fanginu á mömmu eða pabba og halla mér yfir öxlia og grátla þegar mikið liggur við. Ég verð nefnilega 18 mánaða eftir 3 daga og það er sko ekki svo lítið miðað við suma aðra og þegar maður er eins og hálfs árs getur maður ýmislegt, hlaupið, klifrað á sófanum,flétt bókum, hlustað á mömmu og pabba lesa fyrir mann, sagt baby, en það er jú það sem maður er og að því er virðist eru allir sem eru minni en mamma og dadda baby. Þar að auki get ég hermt eftir hundum, kúm, grísum og veitt gerviflugur með tungunni eins og froskur. Ég fór meira að segja í Húsdýragarðinn um daginn og það kom kýr og þefaði af fætinum á mér í stað þess að verða hrædd leit ég á kúnna, sagði muu, hátt og skýrt og hló.
Fyrir nokkru síðan fengu mamma, pabbi og ég köttinn Bellu frá Jóhönnu, Jóhanna á nefnilega fleiri ketti og Bellu líkaði það ekkert allt of vel. Hún hafði verið í pössun hjá okkur í 10 daga og fundist gaman, hér hefur hún mig til að leika við, þó hún vilji nú oft vera í friði, mamma segir að það sé afþví kettir þurf stundum að vera einir og þeim finnist ekki gott að láta knoslast of mikið með sig.
Þar sem það er langt síðan ég hef skrifað finnst mér mikilvægt að minnast á það að núna er ég farinn út að leika með stóru krökkunum hjá Katrínu og Ömmu, það er ótrúlega gaman og þýðir það að ég kem heim með fullt af sandi á útifötunum mínum til marks um afrek dagsins.
Mamma ætlar að skella myndum inn við fyrsta færi.

Bless Bless. Iðunn Nótt

Thursday, March 10, 2005

Lasin stelpa

hæ allir. Nú er kominn mars og mamma hefur ekki verið nógu dugleg við að uppfæra síðuna mína. Hún lofar hér með bót og betrun. Í dag er ég heima með hlaupabóluna í pössun hjá afa. Í fyrstu leist mér ekkert á að mamma ætlaði að skilja mig eftir hjá þessum skrýtna karli, en ég fékk banana svo þetta var ekki alslæmt.
Nýjasta afrek mitt er að læra að labba og nú geri ég það við og við, svona til að halda mér í þjálfun þó ég komist nú hraðar yfir skríðandi. Í tilefni þessa nýja hæfileika míns leikum við, ég, mamma og pabbi reglulega 3 fílar lögðu af stað í leiðangur. Það er ótrúlega gaman hjá okkur.
Hér kemur svo orðabók Iðunnar.
mamma=mamma
dadda=pabbi
amma=amma
ada=þetta
nei=nei (er eitt af mínum uppáhaldsorðum og ég hristi hausinn um leið)
bíddu=bíddu
dah=takk
detta=ég hent einhverju niður
hæ=hæ
bæ=bless á daddamáli (vinka um leið)
namm= ég er svöng eða mikið er þetta girnilegt
mu=kýr
ma=munnur
nn=nef
æ=auga á daddamáli
höndunum lyft upp í loft=svona er ég orðinn stór
klappa saman lófunum=sjáið hvað ég er dugleg.

Monday, December 27, 2004

Jól 2

Gleðileg jól.
Núna eru önnur jólin mín búin. Ég var voðalega fín í nýja köflótta jólakjólnum mínum og vakti mikla lukku með hæfileika mínum við að opna pakka. Svo mikla satt að segja að ég varð að klappa fyrir mér sjálf til að það tækist eftir mér. Það virkaði að sjálfsögðu. Sara frænka mín er búin að vera í heimsókn. Hún kom alla leið frá Englandi til að hitta mig. Seinast þegar hún sá mig var ég bara agnarögn, rauð í framan og sá varla neitt. Núna er ég aftur á móti orðin smá og kann ýmislegt, m.a. að rétta fólki dót, segja mamma, dada, namm og dah (takk).

Bless í bili.

Ps. jólamyndirnar koma eftir nokkra daga

Friday, December 03, 2004

Hæ, allir. Ég er búin að vera hóstandi og lasin seinustu daga. Mamma og Pabbi hafa ekki mátt við að gefa mér volgt vatn og knosl, enda mjög mikilvægt, þegar eins árs gobbi eins og ég á í hlut.
Þetta verður stutt, núna þar sem ég er á leið að dagmammast með ömmu Guggu. Húrra, !

Thursday, November 25, 2004

Skírnin mín


Ég, mamma og pabbi á skírninni minni
Mamma heitir Vega og Pabbi heitir DylanPosted by Hello

Sjáðu hvað ég kann !!


Hér er ég 6 mánaða og stoltPosted by Hello

Ég og mamma


Páskarnir 2004. Það er gaman að vera til Posted by Hello

Fyrstu jólin mín


Hér er ég ekki nema rúmlega mánaðargömul, á aðfangadagskvöld. Sofandi í stólnum henna Ömmu Guggu Posted by Hello

Í baði


Sjáðu hvað ég á fina önd. Posted by Hello

Hæ allir.
Í dag fór ég í 1 árs skoðunina mína. Ég dafna vel, en var ekkert hrifin af öllu veseninu, enda grátlaði ég bara framan í læknin. Hann sprautaði mig og átti því ekkert bros skilið.
Fyrir utan þessa sorgarför, hef ég haft það fínt. Ég uppgötvaði í gær að þegar mamma ætlar að kyssa mig get ég verið á undan og knoslað mömmu. Við skemmtum okkur konunglega við að reyna að vera fyrstar til að knosla hina. Eftir það var komið að því hjá mér að fela mig undir borði og segja bö. Mjög gaman.

Sunday, November 21, 2004

Með tíkó

Svona er ég orðin stór
idunnnott.blogspot.com Posted by Hello

Hæ, aftur.
Í nótt gisti ég í fyrsta skipti hjá Söndru frænku. Við skemmtum okkur konunglega saman, en samt var ég voða glöð að koma heim til mömmu og pabba. Ég fékk tíkarspena í hárið hjá Söndru frænku og það er í fyrsta sinn sem ég er með svoleiðis.