Lasin stelpa
hæ allir. Nú er kominn mars og mamma hefur ekki verið nógu dugleg við að uppfæra síðuna mína. Hún lofar hér með bót og betrun. Í dag er ég heima með hlaupabóluna í pössun hjá afa. Í fyrstu leist mér ekkert á að mamma ætlaði að skilja mig eftir hjá þessum skrýtna karli, en ég fékk banana svo þetta var ekki alslæmt.
Nýjasta afrek mitt er að læra að labba og nú geri ég það við og við, svona til að halda mér í þjálfun þó ég komist nú hraðar yfir skríðandi. Í tilefni þessa nýja hæfileika míns leikum við, ég, mamma og pabbi reglulega 3 fílar lögðu af stað í leiðangur. Það er ótrúlega gaman hjá okkur.
Hér kemur svo orðabók Iðunnar.
mamma=mamma
dadda=pabbi
amma=amma
ada=þetta
nei=nei (er eitt af mínum uppáhaldsorðum og ég hristi hausinn um leið)
bíddu=bíddu
dah=takk
detta=ég hent einhverju niður
hæ=hæ
bæ=bless á daddamáli (vinka um leið)
namm= ég er svöng eða mikið er þetta girnilegt
mu=kýr
ma=munnur
nn=nef
æ=auga á daddamáli
höndunum lyft upp í loft=svona er ég orðinn stór
klappa saman lófunum=sjáið hvað ég er dugleg.

2 Comments:
Hei, var að finna nokkrar sætar myndir af stelpunni sem ég hef tekið seinusta árið...
http://hi.is/~kjj/kolla/2/DSC01320.JPG
http://hi.is/~kjj/kolla/2/DSC01675.JPG
http://hi.is/~kjj/kolla/2/DSC01766.JPG
og eina af Jafar
http://hi.is/~kjj/kolla/2/DSC01759.JPG
Þær eru btw soldið stórar svo endilega skoðið þær annars staðar en heima :|
Post a Comment
<< Home