Eitt og hálft ár.
Hæ, allir.
Nú er ég orðin 18 mánaða gömul. Það gerir mig að stórri stelpu, enda er ég fyrir löngu síðan búin að læra að lyfta upp höndunum til að sýna öllum hvað ég er stór.
Ég veit að ég heiti Iðunn Nótt, en ef þið spyrjið mig mun ég segja baby. Þar sem allir í kringum mig virðast hafa einhverja titla eins og dadda, mamma, amma, afi, frænka og frændi, skil ég ekki hvers vegna ég er ekki bara kölluð baby, það er jú, það sem ég er.
Ég hef eins og margir vita gríðarlegan áhuga á dýrahljóðum og get núna hermt eftir kúm, hundum og svínum. Auk þess sem ég get veitt ,,flugur" með tungunni eins og froskur. Kettir heita aftur á móti allir Bella, eins og kisan sem ég, mamma og dadda eigum, hún mjálmar ekki og þar af leiðandi segir hún bara Bella. Mamma er stundum að reyna að kenna mér að segja mjá, en það finnst mér bara vera fyndið.
Skrifa ykkur seinna.
Iðunn Nótt
