Agnarögnin

Friday, May 13, 2005

Mamma segir að ég sé búinn að vera mikið eðalkrútt en svolítið lítil í mér enda lasinn og búin að þurfa mikið knos. Knosið verður að vera rétt samt, ekki eins og ég sé smábarn, heldur vil ég sitja virðuleg í fanginu á mömmu eða pabba og halla mér yfir öxlia og grátla þegar mikið liggur við. Ég verð nefnilega 18 mánaða eftir 3 daga og það er sko ekki svo lítið miðað við suma aðra og þegar maður er eins og hálfs árs getur maður ýmislegt, hlaupið, klifrað á sófanum,flétt bókum, hlustað á mömmu og pabba lesa fyrir mann, sagt baby, en það er jú það sem maður er og að því er virðist eru allir sem eru minni en mamma og dadda baby. Þar að auki get ég hermt eftir hundum, kúm, grísum og veitt gerviflugur með tungunni eins og froskur. Ég fór meira að segja í Húsdýragarðinn um daginn og það kom kýr og þefaði af fætinum á mér í stað þess að verða hrædd leit ég á kúnna, sagði muu, hátt og skýrt og hló.
Fyrir nokkru síðan fengu mamma, pabbi og ég köttinn Bellu frá Jóhönnu, Jóhanna á nefnilega fleiri ketti og Bellu líkaði það ekkert allt of vel. Hún hafði verið í pössun hjá okkur í 10 daga og fundist gaman, hér hefur hún mig til að leika við, þó hún vilji nú oft vera í friði, mamma segir að það sé afþví kettir þurf stundum að vera einir og þeim finnist ekki gott að láta knoslast of mikið með sig.
Þar sem það er langt síðan ég hef skrifað finnst mér mikilvægt að minnast á það að núna er ég farinn út að leika með stóru krökkunum hjá Katrínu og Ömmu, það er ótrúlega gaman og þýðir það að ég kem heim með fullt af sandi á útifötunum mínum til marks um afrek dagsins.
Mamma ætlar að skella myndum inn við fyrsta færi.

Bless Bless. Iðunn Nótt

1 Comments:

At 5:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Mikið er gaman að heyra í þér eðalkrútt. Nú er líka svo langt síðan ég hef séð þig. Sandra frænka er bara alltaf að vinna, en á miðvikudaginn ætla ég að hjálpa Ömmu að passa þig það verður gaman. Hlakka til að sjá myndir bless bless þin uppáhaldsfrænka

 

Post a Comment

<< Home