Thursday, November 25, 2004
Hæ allir.
Í dag fór ég í 1 árs skoðunina mína. Ég dafna vel, en var ekkert hrifin af öllu veseninu, enda grátlaði ég bara framan í læknin. Hann sprautaði mig og átti því ekkert bros skilið.
Fyrir utan þessa sorgarför, hef ég haft það fínt. Ég uppgötvaði í gær að þegar mamma ætlar að kyssa mig get ég verið á undan og knoslað mömmu. Við skemmtum okkur konunglega við að reyna að vera fyrstar til að knosla hina. Eftir það var komið að því hjá mér að fela mig undir borði og segja bö. Mjög gaman.
Sunday, November 21, 2004
Hæ, aftur.
Í nótt gisti ég í fyrsta skipti hjá Söndru frænku. Við skemmtum okkur konunglega saman, en samt var ég voða glöð að koma heim til mömmu og pabba. Ég fékk tíkarspena í hárið hjá Söndru frænku og það er í fyrsta sinn sem ég er með svoleiðis.
Saturday, November 20, 2004
Hæ, ég heiti Iðunn Nótt Kincla.
Ég er fædd 16. nóvember árið, 2003 og kom vinkandi í heiminn. Mömmu og pabba til mikillar ánægju. Mamma gaf mér að drekka og síðan klæddi pabbi mig í bleika gallan minn og setti á mig bleiu. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og ég er orðin 1. árs og því formlega búin að stíga skrefið frá ungbarni yfir í smábarn. Þess vegna segir mamma að núna sé ég ekki lengur lítil, heldur smá.
Hér fyrir ofan sérðu mynd af mér á Landspítalanum í Reykjavík, að taka mér blund. Ég ætla að kveðja núna en næstu daga fáið þið að fylgjast með ævisögu minni í myndum og máli.
Bless Bless








